Fréttir og greinar

16. janúar 2014

Nýr bæklingur Starfsmenntar kominn út

Starfsmennt-2014-vor-bæklingur-litil-myndÚt er kominn vorbæklingur Fræðslusetursins Starfsmenntar þar sem nám og þjónusta við stofnanir er kynnt. Starfsmennt býður opinberum starfsmönnum upp á starfstengda símenntun og veitir stofnunum heildstæða þjónustu á sviði starfsþróunar.

Í þessum kynningarbæklingi er að finna allar helstu upplýsingar um þjónustu Fræðslusetursins Starfsmenntar vorið 2014, sjá nánar hér.

07. janúar 2014

Trúnaðarmannafræðsla á vorönn 2014

Trmnam-des2013Trúnaðarmenn geta sótt sér fjölbreytt nám til að styrkja sig í að sinna verkefnum sem falla undir hlutverk trúnaðarmanna. Fyrst ber að nefna grunnnám trúnaðarmanna sem SFR og St.Rv. halda sameiginlega, en það er 21 klukkustundar námskeið. Næst ber að nefna trúnaðarmannanám BSRB og Félagsmálaskóla alþýðu (FA). Námið er byggt á tveimur námsskrám (81 klst. og 61 klst.) sem viðurkenndar hafa verið af mennta – og menningarmálaráðuneytinu sem skipt er í 7 þrep. Síðan eru það styttri námskeið og fræðslumorgnar á undan fundum trúnaðarmanna. Þau námskeið sem er búið að festa niður á vorönn eru...