Sameyki Logo
27. nóvember 2015
Kjarasamningur SFR og Reykjavíkurborgar hefur verið samþykktur með miklum meirihluta eða 80,33% atkvæða, nei sögðu 16,39% og 3,28% skiluðu auðu.
Kosning um kjarasamning SFR og Áss styrktarfélags hefur farið fram og var samningurinn samþykktur með 71,43% atkvæðum, nei sögðu 22,45% og auðu skiluðu 6,12%.
26. nóvember 2015
Talin hafa verið atkvæði í kosningu félagsmanna um kjarasamning SFR og RARIK. Alls voru 31 á kjörskrá og var svarhlutfalll 77,42%. Samningurinn var samþykktur með 79.17% atkvæða, nei sögðu 20,83%.
24. nóvember 2015
Rafræn atkvæðagreiðsla um kjarasamning SFR og RARIK er einnig að hefjast. Félagsmenn SFR hjá RARIK munu fá sendan kjörlykil sendan í tölvupósti síðdegis í dag og mun sú atkvæðagreiðsla standa til hádegis fimmtudaginn 26. nóvember.
Rafræn atkvæðagreiðsla um kjarasamning SFR og Reykjavíkurborg er hafin og eru kjörlyklar að detta inn um póstlúgur félagsmanna rétt í þessu. Kjörlyklar munu einnig verða sendir með tölvupósti. Atkvæðagreiðslan stendur til hádegis föstudaginn 27. nóvember.
23. nóvember 2015
Gengið hefur verið frá samningi við RARIK en gildistími hans er 1. mars 2015 til 31. desember 2018. Samninginn má skoða hér.
20. nóvember 2015
Rétt í þessu undirrituðu fulltrúar SFR, St.Rv. og bæjarstarfsmannafélaganna innan BSRB kjarasamning við Samband íslenskra sveitarfélaga. Samningurinn er á svipuðum nótum og þeir samningar sem gerðir hafa verið á opinberum vinnumarkaði undanfarið og tekur mið af því rammasamkomulagi sem aðilar vinnumarkaðarins gerðu í október síðast liðinn. Gildistími samningsins er frá 1. maí 2015 til 31. mars 2019 og verður kynntur félagsmönnum strax eftir helgi. Hér má nálgast samninginn.
Nýlega voru settir upp svokallaðir 4G routerar í öll hús í Munaðarnesi. Leiðbeiningar um það hvernig dvalargestir bera sig að við að kaupa áskrift verða í húsunum.
18. nóvember 2015
Kynningarfundur um kjarasamning SFR og Reykjavíkurborgar verður haldinn að Grettisgötu 89, 1. hæð mánudaginn 23. nóvember kl 16:00. Félagsfólk SFR sem starfar hjá Reykjavíkurborg er hvatt til að koma og kynna sér efni samningsins.
Nýr kjarasamningur milli SFR og Reykjavíkurborgar var undirritaður rétt í þessu í húsnæði sáttasemjara. Samningurinn gildir frá 1. maí 2015 til lok mars 2019 og er á svipuðum nótum og kjarasamningur Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar og borgarinnar sem undirritaður var í síðustu viku. Næstu daga verður innihald samningsins kynnt og að því loknu fer hann í atkvæðagreiðslu.