18. júní 2024
Tími til kominn fyrir opinbera þjónustu!
500 fulltrúar stéttarfélaga í almannaþjónustu víðsvegar um Evrópu, allt frá Úkraínu og Armeníu til Frakklands og Bretlands, sitja nú á þingi EPSU (Evrópsk heildarsamtök opinberra starfsmanna) í Búkarest, til að ákveða áherslur heildarsamtakanna fyrir næstu ár. Þingið hófst í dag og því lýkur 20. júní.