Fréttir og greinar

01. febrúar 2016

Blað stéttarfélaganna á leiðinni

SFR-jan-2016-proof-1.jpg-forsida-vefBlað stéttarfélaganna er að koma úr prentun og verður dreift til félagsmanna næstu daga. Í blaðinu má meðal annars finna alla dagskrá Gott að vita námskeiðanna á vorönn, upplýsingar um páskaúthlutun orlofshúsa, umfjöllun um SALEK samkomulagið og jöfnun lífeyrissjóðsréttinda.

05. janúar 2016

Nám um Vaktavinnu og lýðheilsu

Fræðslusetrið Starfsmennt auglýsir námsleiðina Vaktavinna og lýðheilsa. Námið er ætlað stjórnendum sem skipuleggja vaktir og starfsfólki sem gengur vaktir. Þar sem álitamálin eru mörg er gert ráð fyrir að starfsmenn og stjórnendur sitji sömu námskeið, til að kynnast ólíkum sjónarmiðum og auka gagnkvæman skilning.

Aðilar á vinnumarkaði vilja með þessu námi tryggja að þeir stjórnendur sem skipuleggja vinnu á vöktum og starfsmenn sem ganga vaktir eigi þess kost að sækja námskeið í gerð vaktskráa sem taka mið af líkamsklukku og heilsuvernd.