22. maí 2019
BSRB í viðræðum um styttingu vinnuvikunnar
Viðræðunefnd BSRB sem hefur samningsumboð aðildarfélaga bandalagsins til þess að fjalla um styttingu vinnuvikunnar hefur fundað síðustu vikur með stærstu viðsemjendum, þ.e. bæði ríki, Reykjavíkurborg og Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Í viðræðunefndinni eru ásamt formanni BSRB, Sonju Ýr Þorbergsdóttur, Árni Stefán Jónsson formaður Sameykis, Garðari Hilmarssyni varaformanni Sameykis og fleirum úr stjórn BSRB. Viðræður ganga hægt og nokkur ágreiningur er um leiðir að því markmiði að stytta vinnuvikuna.