Um Sameyki

Sameyki er stærsta stéttarfélag innan BSRB með um sextán þúsund félaga. Það varð til árið 2019 þegar SFR og Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar sameinuðust.

Sameyki stéttarfélag í almannaþjónustu

Sameyki stéttarfélag í almannaþjónustu var stofnað 26. janúar 2019 þegar Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar og SFR sameinuðust. Í dag eru um 14 þúsund félagsmenn í Sameyki. Það er stærsta aðildarfélag BSRB og þriðja stærsta stéttarfélag landsins.
Félagsmenn starfa um allt land, í fjölbreyttum störfum og með ólíkan bakgrunn. Félagið skiptist í tvo hluta: opinberan og almennan. Flestir félagsmenn búa á höfuðborgarsvæðinu og konur eru í meirihluta.

Hlutverk félagsins

  • Vinna að hagsmunum félaga og verja réttindi þeirra
  • Berjast gegn misrétti í launum og starfskjörum
  • Koma fram í kjarasamningum fyrir hönd félaga
  • Taka þátt í réttindabaráttu á vettvangi BSRB

Réttur til aðildar að Sameyki

  • Starfsfólk ríkis og sveitarfélaga sem á ekki aðild að öðru félagi sem fer með samningsrétt þeirra
  • Starfsfólk sjálfseignarstofnana (samkvæmt 2. gr. laga um kjarasamninga opinberra starfsmanna)
  • Starfsfólk stofnana og fyrirtækja sem starfa í almannaþágu
  • Starfsfólk utan almannaþjónustu sem á ekki aðild að öðru stéttarfélagi

Starfsemin

Stjórn Sameykis skipa 15 einstaklingar: formaður og 14 meðstjórnendur, kosnir úr hópi félaga til þriggja ára. Formaður Sameykis er Kári Sigurðsson.

Stefnur og áætlanir

Fjölmiðlatorg

Hér finnur þú gagnlegar upplýsingar fyrir fjölmiðla:
merki Sameykis, myndir og upplýsingar um félagið.