Stofnun ársins
Í febrúar ár hvert eru kynntar niðurstöður á mati félagsmanna á frammistöðu vinnustaða sinna í könnun til að velja Stofnun ársins.
Flýtileiðir
Könnunin
Um stofnun ársins
Val á Stofnun ársins, Fyrirmyndarstofnunum og Hástökkvara ársins byggir á mati starfsfólks. Niðurstöðurnar gefa skýra mynd af frammistöðu vinnustaða þegar kemur að stjórnun, starfsanda, launakjörum, vinnuskilyrðum, sveigjanleika, sjálfstæði, ímynd og jafnrétti.
Stofnun ársins er samstarfsverkefni Sameykis, fjármála- og efnahagsráðuneytisins og Reykjavíkurborgar og nær til um 35.000 starfsmanna á opinberum vinnumarkaði. Yfirleitt taka þátt þeir sem hafa starfað í að minnsta kosti þrjá mánuði og eru í 30% starfshlutfalli eða meira, svo þeir geti metið starfsumhverfi sitt á áreiðanlegan hátt.
Stofnun ársins 2025
Sigurvegarar og hástökkvarar
Félagsmiðstöðin Vígyn - Víkurskóla
Gló stuðningsfélag
Hitt Húsið
Leikskólinn Gullborg
Menntaskólinn á Egilsstöðum
Menntaskólinn á Tröllaskaga
Menntaskólinn í Kópavogi.
Hástökkvarar ársins eru Menntaskólinn í Reykjavík og Skammtímadvöl Árland.
Verðlaunafhending Stofnunar ársins 2025
Verðlaunaafhending vegna stofnunar ársins fór fram 12. febrúar 2026 við hátíðlega athöfn. Stofnanir ársins fengu verðlaun í sex flokkum auk þess sem hástökkvarar ársins fengu sérstaka viðurkenningu.
Málþing um mannauðsmál
Þema málþingsins árið 2026 var virkni og vellíðan á vinnumarkaði. Málþingið var haldið 12. febrúar
kl. 14 til 16:15 á Hilton Reykjavík Nordica.
Eldri stofnanir ársins
Val á Stofnun ársins, Fyrirmyndarstofnunum og Hástökkvara ársins nær aftur til ársins 2006. Niðurstöðurnar eru mælikvarði á frammistöðu stofnana þegar kemur að stjórnun, starfsanda, launakjörum, vinnuskilyrðum, sveigjanleika og sjálfstæði í starfi, ímynd stofnana og jafnrétti.