Stofnun ársins 2024
Flýtileiðir
Stofnun ársins 2024
Niðurstöður Stofnunar ársins 2024
Niðurstöður í vali á Stofnun ársins 2024 var tilkynnt á hátíð Sameykis 13. febrúar 2025 en titlana Stofnun ársins - ríkisstofnanir, Stofnun ársins - borg og bær og Stofnun ársins - sjálfseignastofnanir og fyrirtæki í almannaþjónustu hljóta þær stofnanir sem þykja skara fram úr í þeim níu þáttum sem könnunin byggir á að mati starfsfólks þeirra. Um er að ræða mat á innra starfsumhverfi stofnana og starfsstaða. Þættirnir níu eru trúverðugleiki stjórnenda, starfsandi, launakjör, vinnuskilyrði, sveigjanleika í starfi, sjálfstæði í starfi, ímynd stofnunar, ánægju og stolt og jafnrétti.
Þátttakendur hafa aldrei verið fleiri í Stofnun ársins en nú, en í ár tóku tæplega 17.400 þátt í könnuninni. Reykjavíkurborg er þátttakandi í könnuninni með allt starfsfólk í þriðja sinn en allt ríkisstarfsfólk hefur tekið þátt síðan árið 2011. Við gerð þátttökulista var miðað við að starfsfólk sem fékk könnunina senda væri starfandi í ágúst og október og væri í að lágmarki 20% starfshlutfalli.
Ríki
Ríkisstofnanir ársins
Í heildina komust 140 ríkisstofnanir á lista árið 2024; 55 stofnanir þar sem starfsfólk er færra en 40, 39 stofnanir þar sem starfsfólk er 40-89 og 46 stofnanir með 90 eða fleira starfsfólk.
Stór starfsstöð
1. Fjölbrautaskóli Suðurnesja
2. Menntaskólinn í Kópavogi
3. Fjölbrautskóli Suðurlands
4. Vatnajökulsþjóðgarður
5. Vínbúðin - ÁTVR
Meðalstór starfsstöð
1. Þjóðskrá Íslands
2. Menntaskólinn á Ísafirði
3. Vinnueftirlit ríkisins
4. Menntaskólinn á Egilsstöðum
5. Náttúrufræðistofnun
Lítil starfsstöð
1. Kvikmyndasafn Íslands
2. Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum
3. Menntaskólinn á Tröllaskaga
4. Framhaldsskólinn á Húsavík
5. Þjónustumiðstöð fyrir blinda og sjónskerta
Borg og bær
Stofnanir ársins hjá borg og bæ
Þetta er þriðja árið sem Reykjavíkurborg tekur þátt fyrir allt starfsfólk. Alls náðu 257 starfsstaðir lágmarksviðmiðum og taka þátt í vali á Stofnun ársins - borg og bær.
Stór starfsstöð
1. Hitt húsið
2. Leikskólinn Rauðhóll
3. Háteigsskóli
4. Álftamýrarskóli
5. Sæmundarskóli
Meðalstór starfsstöð
1. Leikskólinn Lyngheimar
2. Leikskólinn Gullborg
3. Rafræn miðstöð
4. Leikskólinn Álftaborg
5. Íbúðarkjarni Stjörnugróf
Lítil starfsstöð
1. Félagsmiðstöðin Sigyn
2. Frístundaheimilið Frostheimar
3. Félagsmiðstöðin Fjörgyn
4. Frístundaheimilið Selið
5. Félagsmiðstöðin 105
Sjálfseignarstofnanir
Sjálfseignarstofnanir og fyrirtæki í almannaþjónustu
Sérstakur listi er fyrir sjálfseignarstofnanir og fyrirtæki í almannaþjónustu, líkt og fyrir ári. Alls náðu sex stofnanir þátttökuskilyrðum. Efst á lista meðal sjálfseignastofnanna og fyrirtækja í almannaþjónustu er Heilsustofnun NLFÍ.
1. Heilsustofnun NLFÍ
2. LSR
3. Reykjalundur