- febrúar 2025
Stofnun ársins 2024 - verðlaunahafar
Stofnun ársins 2024 - verðlaunahafar
Sameyki stéttarfélag í almannaþjónustu tilkynnti um valið á Stofnun ársins 2024 við hátíðlega athöfn í gær. Titlana Stofnun ársins 2024 hljóta þær stofnanir og starfsstaðir sem þykja skara fram úr á sviði mannauðsmála að mati starfsfólks. Hátíðin var að venju vel sótt og nýr formaður Sameykis bauð gesti á hátíðina velkoma.
„Mannauðskönnunin Stofnun ársins er stórt verkefni sem nær til 35 þús starfsmanna á opinberum vinnumarkaði, sem er enginn smá fjöldi. En hver er tilgangurinn?,“ spurði Kári og svaraði. „Hann er fyrst og fremst að styrkja starfsumhverfi starfsfólks út frá þeirra sjónarhorni og veitir í leiðinni stjórnendum mikilvæg verkfæri til að vinna að umbótum á sínum vinnustað. Það er því afskaplega gaman að fá tækifæri hér sem nýr formaður Sameykis að veita þeim stofnunum og vinnustöðum viðurkenningu sem skarað hafa fram úr í mannauðsmálum,“ sagði Kári Sigurðursson, formaður Sameykis, og uppskar mikið lófaklapp.
Þá sagði hann að sér þætti einstaklega vænt um viðburðinn Stofnun ársins: „Mig þykir einstaklega vænt um þennan viðburð, ég hef í fjöldamörg ár tekið þátt þessari könnun og einnig verið svo heppinn að mæta hér í salinn. Ég hef verið hérna sem starfsmaður, stjórnandi á vinnustað og stjórnarmaður í Sameyki, og alltaf hefur mér fundist jafn gaman að mæta hingað.“
Kári Sigurðsson, formaður Sameykis.
Í ár tóku rúmlega 17.000 manns þátt í könnuninni sem var framkvæmd í október og nóvember 2024. Reykjavíkurborg er þátttakandi í könnuninni með allt sitt starfsfólk í þriðja sinn en allt starfsfólk hjá ríkinu hefur tekið þátt síðan 2011.
Stofnun ársins er samstarfsverkefni Sameykis, Fjármála- og efnahagsráðuneytisins, Reykjavíkurborgar og fjölmargra annarra stofnana og vinnustaða, en hún nær til um 35.000 manns sem starfa á opinberum vinnumarkaði. Niðurstöður könnunarinnar veita bæði mikilvægar upplýsingar um starfsumhverfi vinnustaða og samanburð við aðrar stofnanir.
Tilgangur með vali á Stofnun ársins er að taka eftir og veita þeim vinnustöðum viðurkenningar sem náð hafa framúrskarandi árangri við stjórnun mannauðs. Þá nýtist könnunin stjórnendum til að vinna að frekari umbótum í stjórnun og starfsumhverfi vinnustaða. Að lokum veitir könnunin aðhald til hagsbóta fyrir starfsfólk, skjólstæðinga, viðskiptavini og aðra hagsmunaaðila.
Titlana Stofnun ársins 2024 hljóta þeir vinnustaðir sem þykja skara fram úr í þeim þáttum sem mannauðskönnunin náði yfir að mati starfsfólks þeirra.
Stofnanir ársins 2024 – borg og bær í þremur flokkum:
- Félagsmiðstöðin Sigyn, Leikskólinn Lyngheimar, Hitt húsið.
Kristín Helgadóttir, leikskólastjóri í Leikskólanum Lyngheimum stók á móti viðurkenningunni Stofnun ársins 2024.
Stofnanir ársins 2024 – ríki í þremur flokkum:
- Kvikmyndasafn Íslands, Þjóðskrá íslands, Fjölbrautarskóli Suðurnesja.
Júlía Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Þjóðskrá, tók á móti viðurkenningunni Stofnun ársins 2024 og var hörku ánægð með árangurinn.
Hástökkvari ársins 2024:
- Borg og bær: Íbúðakjarni Rökkvatjörn.
- Ríki: Menningar- og viðskiptaráðuneytið.
Forstöðumaður og deildarstjóri hjá Íbúðakjarnanum Rökkvatjörn, Sigríður María Einarsdóttir og Garðar Þór Pétursson, deildarstjóri tóku á móti viðurkenningunni Hástökkvari ársins - borg og bær. Kári Sigurðsson, formaður Sameykis og Ingibjörg Sif Sigríðardóttir, varaformaður, afhentu þeim viðurkenninguna.
Snorri Jónsson, mannauðsstjóri, Menningar- og viðskiptaráðuneytisins, og Guðrún Gunnarsdóttir, skrifstofustjóri, tóku á móti viðurkenningunni Hástökkvari ársins – ríki.
Stofnanir ársins 2024 – einn flokkur:
- Sjálfseignastofnanir og fyrirtæki í almannaþjónustu: Heilsustofnun NLFÍ.
Þórir Haraldsson forstjóri NLFÍ, tók á móti viðurkenningu Stofnun ársins 2024 í flokknum Sjálfseignastofnanir og fyrirtæki í almannaþjónustu.
Niðurstöðurnar voru kynntar að loknu vel heppnuðu málþingi um mannauðsmál og var yfirskrift þess Jákvæð vinnustaðamenning. Fyrirlesarar á málþinginu voru: Auðunn Gunnar Eiríksson, stjórnenda og vinnustaðaráðgjafi hjá Gallup, Hjördís Dröfn Vilhjálmsdóttir og Kristrún Anna Konráðsdóttir, leiðtoga- og teymisþjálfar, Tómas Bjarnason, doktor í félagsfræði og Þórkatla Aðalsteinsdóttir, sálfræðingur.
Málþingsstjóri var Sirrý Arnardóttir.
Fyrirmyndarstofnanir ársins í öllum flokkum má sjá hér.
Ljósmyndir frá Stofnun ársins má sjá hér.
Ljósmyndir frá málþinginu,Jákvæð vinnustaðamenning má sjá hér.