10. júlí 2013
Munaðarnes - andlitslyfting
Undanfarna mánuði hafa staðað yfir gagngerar endurbætur á húsum SFR í Bjarkarási númer þrjú og fimm í svipuðum anda og gert var við hús félagsins í Vörðuási og Bjarkarási nr. 10 í fyrra. Húsin eru þó í við stærri og verða eftir breytingar um 87 fm og pallurinn 83 fm. Um gagngera endurbyggingu er að ræða og skipt hefur verið um innréttingar, glugga, hurðir, klæðningar o.fl. Búast má við að húsin verði tilbúin til útleigu í byrjun ágúst, en það verður auglýst nánar hér á vefnum þegar að því kemur.