05. september 2014
Atkvæðagreiðsla um kjarasamning Áss - frestur til 11. sep.
Þessa viku hefur staðið yfir atkvæðagreiðsla um nýjan kjarasamning SFR og Ás styrktarfélags. Þátttaka hefur verið mjög dræm og því hefur verið ákveðið af framlengja atkvæðagreiðsluna fram til kl. 11:00 fimmtudaginn 11. sept.
Nýr kynningarfundur um samninginn verður haldinn í Lyngási mánudaginn 8. september kl. 15:15. Við hvetjum ykkur til að koma á fundinn og til að að nýta ykkur atkvæðisréttnn en mjög mikilvægt er að ná góðri kosningu svo hún verði örugglega gild. Atkvæðagreiðslan er rafræn og því er smellt hér og sett inn lykilorð sem félagsmenn fengu sent í bréfapósti.