23. júlí 2014
Mótmælum árásum á almenna borgara
Í dag, miðvikudag 23. júlí kl. 17, stendur Félagið Ísland - Palestína fyrir útifundi á Ingólfstorgi. Fundurinn verður haldinn undir kjörorðinu "stöðvum blóðbaðið á Gaza, alþjóðlega vernd fyrir Palestínumenn, burt með herkvína um Gaza, niður með hernámið".
SFR stéttarfélag hvetur félagsmenn sína til að mæta á fundinn. Yfir 600 Palestínumenn hafa týnt lífi í árásum Ísraela á byggðir Palestínumanna á Gaza sem nú hafa staðið í 15 sólarhringa. Flestir hinna látnu eru almennir borgarar.