14. september 2021
„Ætla að leyfa mér að vera bjartsýnn“
Gylfi Magnússon, prófessor og forseti viðskiptafræðideildar Háskóla Íslands ræddi á trúnaðarmannaráðsfundi Sameykis sem haldinn var í dag um efnahagslífið í faraldri fyrir og eftir hrun. Fram kom í máli hans að horfurnar í efnahagslífinu eftir COVID-19 eru alls ekki svo slæmar að hans mati. Sagðist hann ætla að leyfa sér að vera nokkuð bjarsýnn á framtíðina þrátt fyrir allt. Sló prófessorinn á létta strengi í máli sínu og uppskar oft hlátur fundargesta þó fundarefnið hafi verið á alvarlegu nótunum. Sagði Gylfi að hallinn á ríkissjóði í faraldrinum hafi verið 230 milljarðar króna eða 130 milljónir á dag. Verg landsframleiðsla dróst hratt saman, jafnvel hraðar í faraldrinum en í hruninu, og landsframleiðsla dróst einnig saman líkt og á árunum 2008-9. Heildarmyndin sé þó samt vel viðráðanleg sagði Gylfi og peningalegar stærðir væru hagstæðar.