Sameyki Logo
Heim
08. desember 2016
Undirbúningur vegna kjarasamningsviðræðna við Isavía
Kjarasamningur SFR við Isavia rennur út 28. febrúar 2017. Því til undirbúnings voru tvær vinnustofur haldnar í Reykjanesbæ í vikunni þar sem SFR félagar hjá Isavia lögðu fram sínar hugmyndir um hverju skyldi leitast við að ná fram í kjarasamningsviðræðunum framundan.
05. desember 2016
Breytingar á úthlutunarreglum Starfsmenntunarsjóðs SFR
Breytingar hafa verið gerðar á úthlutunarreglum starfsmenntunarsjóðsins og taka þær gildi 1. janúar 2017.
Birkihlíð í Munaðarnesi
BSRB á eitt orlofhús í Munaðarnesi. Húsið hefur verið leigt út til félagsmanna aðildarfélaga BSRB. Nú í desember og einnig eftir áramót eru nokkrar helgar og vikur lausar. Áhugasamir félagsmenn SFR eru beðnir um að hafa samband beint viðand við skrifstofu BSRB í síma 525-8300 eða senda tölvupóst á netfangið asthildur@bsrb.is
02. desember 2016
Kröfugerð fyrir kjarasamning ISAVIA og SFR í vinnslu
30. nóvember 2016
Orlofshús á aðventunni
Það getur verið notalegt að hreiðra um sig í orlofshúsi á aðventunni. Sumir taka jafnvel með sér jólaföndrið og njóta kyrrðarinnar. Við eigum laus hús í Vaðnesi, Munaðarnesi og í Húsafelli um helgina. Kíktu inn á orlofsvefinn undir Mínum síðum.
28. nóvember 2016
Vel heppnað aðventukvöld
SFR og St.Rv. héldu sameiginlegt aðventukvöld fyrir félagsmenn sína þann 24. nóvember síðastliðinn. Kvöldið var afar vel heppnað en yfir 80 manns komu til þess að hlýða á upplestur og tónlist. Rithöfundarnir Guðrún Eva Mínervudóttir og Davíð Logi Sigurðsson lásu upp úr nýjum verkum, Jólatríólurnar sungu jólalög, Þórarinn Eyfjörð las ljóð og síðastur á svið var Bjartmar Guðlaugsson sem bæði las og söng fyrir gesti. við mikinn fögnuð viðstaddra.
23. nóvember 2016
Vinnustofur vegna stofnanasamninga
Í vikunni fóru af stað fyrstu vinnustofur vegna stofnanasamninga. Þar koma saman trúnaðarmenn og fulltrúar SFR á vinnustöðum ásamt stjórnendum sem saman mynda samstarfsnefndir stofnana.
22. nóvember 2016
Jólaball SFR og St.Rv.
Hið árlega jólaball SFR og St.Rv. verður haldið laugardaginn 10. des. í Gullhömrum. Allir félagsmenn eru velkomnir með fjölskyldur sínar. Miða þarf að kaupa á skrifstofum félaganna og ksotar hver miði 700 kr. Innifaldar eru veitingar, kaffi og kökuhlaðborð bæði fyrir börn og fullorðna og auðvitað nammi fyrir börnin frá jólasveinunum.
21. nóvember 2016
Aðventukvöld SFR og St.Rv.
Við ætlum að eiga saman notalega aðventustund á Grettisgötunni. Við bjóðum upp á heitt súkkulaði og smákökur, upplestur og tónlist. Allir félagsmenn SFR og St.Rv. velkomnir, frítt inn.
18. nóvember 2016
Háskóladeild SFR stofnuð
Um þrjátíu félagsmenn úr SFR mættu á stofnfund háskóladeildar félagsins sem haldinn var í gær. Árni Stefán Jónsson ávarpaði fundinn og óskaði fundarmönnum meðal annars til hamingju með daginn, enda stofnfundurinn haldinn á 77 ára afmælisdegi SFR. Mikil ánægja var meðal fundarmanna með stofnun deildarinnar enda hafa háskólamenn lengi beðið eftir samastað innan félagsins en þeir eru um 11% félagsmanna.