01. september 2015
Kjarasamningsviðræður árangurslitlar
Samninganefndir SFR, SLFÍ og LL áttu fund með samninganefnd ríkisins fyrir stundu. Á fundinum svaraði samninganefnd ríkisins launakröfum félaganna sem lagðar voru fram í síðustu viku.
Tilboð samninganefndar ríkisins sem lagt var fram í dag olli, svo ekki sé meira sagt, verulegri óánægju í röðum fulltrúa samninganefnda félaganna. Enda var það lítið breytt frá því tilboði sem ríkið lagði fram 27. júní síðastliðinn og alls ekki í takt við launakröfur félaganna sem tóku mið af nýgengnum gerðardómi sem eins og kunnugt er ákvað nýlega laun félaga í BHM og hjúkrunarfræðinga.