21. október 2015
Hægagangur í viðræðum
Verkfall SFR og SLFÍ hefur nú staðið í tæpa viku. Fyrstu lotu í allsherjarvinnustöðvun er lokið og lögðu um fimm þúsund starfsmenn niður vinnu í fjóra daga. Félagsmenn SFR sem starfa hjá Tollstjóra, Ríkisskattstjóra, sýslumannsembættunum og Landspítala eru áfram í ótímabundnu verkfalli og einnig eru sjúkraliðar sem starfa á dagvöktum á Landspítala, Heilsustofnun Austurlands og Heilsustofnun Suðurnesja í verkfalli á dagvöktum alla virka daga.
Samninganefndir félaganna og samninganefnd ríkisins undir stjórn sáttasemjara hafa fundað alla verkfallsdagana fram á kvöld og reynt að ná samningum. Viðræður hafa verið í gangi og eitthvað þokast í rétta átt, en hægagangurinn er mikill og hafa félögin ýtt á að lausn finnst sem fyrst svo binda megi enda á þessa erfiðu deilu sem hefur nú þegar haft mikil áhrif á samfélagið allt.