Fréttir og greinar

01. maí 2015

  1. maí - metfjöldi í kröfugöngu

IMG_8823 (Copy)Metfjöldi var í 1. maí göngu verkalýðsfélganna í Reykjavík í dag. Þar hélt Árni Stefán Jónsson formaður SFR þrumandi ræðu og mikið fjölmenni var viðstatt ræðuhöldin á Ingólfstorgi sem vart rúmaði mannfjöldann. Hér má lesa ræðu formannsins. Stemmningin var mikil og góð eins og myndirnar hér sýna.

 

29. apríl 2015

BLAÐ STÉTTARFÉLAGANNA ER KOMIÐ ÚT

1 mai blad forsíðaBlað stéttarfélaganna er komið sneisafullt af efni. Þar má meðal annars lesa um 1. maí og dagskrá dagsins í Reykjavík. Tveir vinnustaðir eru heimsóttir, en það eru Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu og Höfðatorg. Þá er fjallað um kjaramál og stöðuna við kjaraviðræðum félaganna. Í blaðinu má einnig finna viðtal við Guðrúnu Kristínu Svavarsdóttur en hún hefur undanfarið glímt við krabbamein og hefur miklar skoðanir á kostnaðurþátttöku sjúklinga.