12. mars 2019
Eitt orlofskerfi fyrir alla félagsmenn Sameykis í vinnslu
Nú er unnið að því að setja upp eitt orlofskerfi fyrir íbúðir, orlofshús, gjafabréf og fleira þannig að allir félagsmenn Sameykis hafi aðgang að öllum orlofseignum fyrrum SFR og St.Rv. Orlofskerfið sem varð fyrir valinu heitir Frímann og er það sama og St.Rv. var með fyrir sameiningu.