21. febrúar 2022
Félagsfundur í Reykjavík og Reykjanesi
Rafrænn félagsfundur með félagsfólki Sameykis í Reykjavík og Reykjanesi verður haldinn á morgun, þriðjudag 22. febrúar, klukkan 10 og miðvikudag 23. febrúar á sama tíma. Við hvetjum allt félagsfólk í Sameyki í Reykjavík og Reykjanesi til að taka þátt í fundinum þar sem umræðuefnin verða réttindamál, kjaramál, heimavinna í heimsfaraldrinum og viðhorf félagsfólks til hennar. Formaður Sameykis fjallar um umræður um opinbera starfsmenn í samfélaginu og mikilvægi þeirra starfa sem þeir sinna, jöfnun launa á milli markaða ofl.