Fréttir og greinar

20. júní 2013

Ísland til eftirbreytni

VIRK logoÁ vef Virk starfsendurhæfingar má lesa að á yfirstandandi þingi Alþjóðavinnumálastofnunarinnar (ILO) var framkvæmd Íslands á alþjóðasamþykkt um starfsendurhæfingu og atvinnumál fatlaðra valin til umfjöllunar sem dæmi um framkvæmd samþykktar sem gæti orðið öðrum ríkjum til eftirbreytni á yfirstandandi þingi Alþjóðavinnumálastofnunarinnar (ILO).

18. júní 2013

Forystufræðsla BSRB og ASÍ

Skráning er hafin á fjölda haustnámskeiða þar sem áhersla er lögð á undirbúning kjarasamninga og betri þjónustu. Það eru heildarsamtök stéttarfélaga á vinnumarkaði, ASÍ og BSRB, sem hafa tekið höndum saman um sameiginlega fræðslu fyrir starfsfólk sitt og stjórnir með það fyrir augum að mæta breyttum tímum, nýjum áherslum og viðameiri verkefnum.

13. júní 2013

Hótelmiðar á Fosshótel og Edduhótel

edda-laugar-saelingsd-husogumhverfi-big(1)Hægt er að kaupa hótelmiða hér á orlofsvefnum undir liðnum „ávísanir“. Hver félagsmaður getur keypt mest 7 miða. Miðarnir eru til sölu frá byrjun júní fram í ágúst. Eftir 7. ágúst er ekki tryggt að hótelmiðar verði í boði hjá SFR. Félagsmenn bóka sjálfir í síma viðkomandi hótels. Félagsmenn eru hvattir til að panta gistingu með góðum fyrirvara.