12. ágúst 2015
Stefnubreyting við sameiningu stofnana
Í grein í Fréttablaðinu í dag skrifar Alma Lísa Jóhannsdóttir, ráðgjafi hjá SFR, um sameiningar stofnana. „Ef litið er til þeirrar aðferðafræði sem notuð hefur verið við sameiningu stofnana á undanförnum árum má sjá að nú hefur átt sér stað stefnubreyting. Hún birtist með þeim hætti að stjórnvöld telja nú mikilvægt, jafnvel nauðsynlegt, að segja öllu starfsfólki upp við sameiningar stofnana.“