14. september 2022
Ríkið stendur ekki við samninga um jöfnun launa
Sameyki hefur í greinaskrifum og í fréttaflutningi vakið athygli á því að stjórnvöld hafa ekki staðið við loforð í samkomulagi sem undirritað var 19. september 2016 á milli BSRB, BHM, KÍ, ríkisins og Sambands íslenskra sveitarfélaga um breytingar á skipan lífeyrismála og jöfnun launa á milli opinbera vinnumarkaðarins og almenna vinnumarkaðarins