17. mars 2017
Starfsfólk Sýslumannsembættisins á höfuðborgarsvæðinu er ósátt við mishá laun í sömu störfum
Í frétt á vef RÚV í dag kemur fram að hjá sameinuðu embætti sýslumanns höfuðborgarsvæðisins séu launakjör starfsfólks sem gegnir sömu störfunum ólík. Rætt er við formann SFR, Árna Stefán Jónsson, sem fundaði með starfsfólkinu síðastliðinn mánudag, þar sem hann segir „að eftir sameiningu hafi SFR beitt sér töluvert fyrir meiri fjármögnun frá ríkinu“.