Fréttir og greinar

17. september 2013

Lægst laun hjá hinu opinbera

Launakönnun2013-Launamunur-stettarfelog-bandalogLaunin eru hæst á almennum vinnumarkaði og munar þar talsverðu. Þetta sýna niðurstöður launakannana SFR, St.Rv. og VR. Félagsmenn VR eru með  tæplega 18% hærri heildarlaun en félagsmenn SFR og 28% hærri heildarlaun en félagsmenn St.Rv. að teknu tilliti til mismunandi samsetningar hópanna.

17. september 2013

Blað stéttarfélaganna komið út

Bladstettarfelaganna-forsida-litilNýtt Blað stéttarfélaganna er komið út og geta félagsmenn átt von á því í póstinum von bráðar. Í blaðinu er greint ítarlega frá niðurstöðum launakönnunar og þar er einnig að finna dagskrá Gott að vita og viðtal við Eygló Harðardóttur ráðherra.

16. september 2013

Leigumarkaðurinn í kjarakönnun BSRB

BSRBmerkigottSamkvæmt kjarakönnun BSRB sem lesa má um á vefsíðu bandalagsins telja 26,5% félagsmanna það líklegt að þeir myndu velja að leigja húsnæði til frambúðar frekar en að kaupa ef búseta þeirra væri tryggð í leiguhúsnæðinu. Það verður að teljast dágóður fjöldi þegar staðreyndin er sú að tæplega 85% félagsmanna BSRB búa í eigin húsnæði í dag.

11. september 2013

Hreyfitorg; formleg opnun og málþing 13. september

HREYFITORG_300X300Á vef VIRK kemur fram að gagnvirki vefurinn Hreyfitorg verður opnaður með formlegum hætti fös.13. sept. kl. 14. Í tilefni opnunarinnar verður á sama tíma haldið málþingið Þjálfun almennings - ábyrg þjónusta, upplýst val. Meginmarkmið Hreyfitorgs er að auðvelda fólki að finna hreyfingu sem samræmist getu og áhuga hverju sinni og stuðlar að heilbrigði og vellíðan. Þátttaka í opnuninni og málþinginu er án endurgjalds en skrá þarf þátttöku á vef Embættis landlæknis.

09. september 2013

BSRB ályktar um ríkisfjármál

BSRBmerkigottÁ heimasíðu BSRB segir frá ályktun stjórnar BSRB um ríkisfjármál sem samþykkt var á fundi bandalagsins sem haldinn var á Egilsstöðum fyrir helgina. Í ályktuninni er m.a. brýnt fyrir stjórnvöldum að frekari aðhaldsaðgerðir hjá hinu opinbera muni hafa mjög neikvæðar afleiðingar í för með sér og vinna gegn markmiðum stjórnvalda um að ná fram jöfnuði í ríkisrekstrinum.