01. apríl 2020
Opinberum starfsmönnum fækkað hlutfallslega
Í ljósi umræðunnar um fjölgun starfsfólks í opinbera geiranum birti BSRB nýverið úttekt á því hver staðan er í raun og sann. Á vefsíðu BSRB kemur fram að opinberum starfsmönnum sem sinna meðal annars mikilvægri almannaþjónustu hefur fækkað hlutfallslega miðað við mannfjölda á undanförnum árum þrátt fyrir aukningu verkefna og breytta aldurssamsetningu þjóðarinnar. Þetta sýnir úttekt BSRB á stöðugildum hjá ríki og sveitarfélögum.