09. mars 2016
Verum örugg í vinnunni - nýr bæklingur um áreitni og ofbeldi
Allir eiga rétt á því að starfsumhverfi þeirra einkennist af gagnkvæmri virðingu í samskiptum. Í því felst að starfsmenn eiga rétt á því að njóta skilyrðislausrar verndar gegn kynbundinni og kynferðislegri áreitni og öðru ofbeldi á vinnustað. Nú er kominn út bæklingur þar sem farið er yfir ýmis atriði tengt kynbundinni og kynferðislegri áreitni og ofbeldi á vinnustöðum. Að bæklingnum standa ASÍ, BHM, BSRB, KÍ, Jafnréttisráð og Jafnréttisstofa. Hann kom út 8. mars, á alþjóðlegum baráttudegi kvenna og kynnti Sonja Þorbergsdóttir lögfræðingur BSRB hann m.a. á hádegisverðarfund bandalaganna á Grand Hótel Reykjavík.