1. apríl 2016

Trúnaðarmenn funda

Nú stendur yfir fundur trúnaðarmanna SFR. Á fundinum hélt Indriði H. Þorkláksson hagfræðingur afar áhugavert erindi um skattaskjól og áhrif þess á samfélagið. Góður rómur var gerður að orðum Indriði enda málefnið afar áhugavert og erindi hans skýrt þeim sem á hlýddu. Að því loknu snéru trúnaðarmenn sér að vinnu við undirbúning stofnanasamningsgerð næsta vetrar og krufu meðal annars nýgerða kjarasamninga. Í lok fundar verður farið yfir dagskrá 1. maí og hlutverk trúnaðarmanna þar auk annarra mála. Í morgun var einnig fræðslumorgunn trúnaðarmanna þar sem Ingrid Kuhlman hélt erindi fyrir trúnaðarmenn.

IMG_0900

IMG_0906

IMG_0909

IMG_0913

IMG_0916

IMG_0899