21. apríl 2015
Stéttarfélögin í nútíð og framtíð
Sameiginleg ráðstefna BSRB og ASÍ um hlutverk stéttarfélaga í samfélaginu sem haldin var á Grand hótel í morgun var afar vel sótt. Þar fluttu þau Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ, Árni Stefán Jónsson formaður SFR og fyrsti varaformaður BSRB og Sigurrós Kristinsdóttir varaformaður Eflingar erindi auk tveggja fulltrúa yngri kynslóðarinnar. Það voru þau Þórdís Viborg frá SFR og Ingólfur Björgvin Jónsson frá ASÍ Ung. Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB var fundarstjóri og þau Þóra Kristín Ásgeirsdóttir og Helgi Seljan fréttamenn sátu fundinn og komu með viðbrögð við erindum og spurningar sem brunnu á þeim. Ráðstefnan er nú haldin í aðdraganda 1. maí, meðal annars til þess að undirstrika mikilvægi hans fyrir allt launafólk í landinu.