14. maí 2024
Kjarasamningar og núvitund
Rétt í þessu lauk síðasta fundi Trúnaðarmannaráðs Sameykis á þessari vorönn. Samkvæmt dagskrá fundarins hóf Þórarinn Eyfjörð, formaður Sameykis, fundinn með erindi um stöðu kjarasamninga félagsins. Fór hann yfir ferli nýundirritaðs kjarasamning Sameykis og Félags flugmálastarfsmanna ríkisins (FFR) sem hann sagði hafa verið töluvert flókið.