Sameyki Logo
30. mars 2020
Fyrirlestrar og fræðsla á vefnum
Sameyki í samstarfi við Framvegis miðstöð um símenntun býður félagsmönnum upp á fræðslufyrirlestra í beinni útsendingu.
Afgreiðsla verkfallsbóta
Einhverjir félagsmenn áttu að vera á nætuvakt 9. mars þegar vekfalli var aflýst og gætu því átt rétt á verkfallsbótum ef dregið verður af launum þeirra vegna verkfalls.
27. mars 2020
Fræðsla í vefheimum – laust á spænskunámskeið
Í samstarfi við fræðslumiðstöðvar víða um land erum við að vinna að því að bjóða upp á fyrirlestra og námskeið á vefnum.
Kæri félagi
Ég vil fyrir hönd okkar allra þakka félagsfólki í Sameyki sem stendur vaktina nú á þessum erfiðu tímum. Starfsfólk sem sinnir umönnun veikra, aldraðra og fatlaðra, fólkið okkar sem starfar í skólum og leikskólum og allir hinir sem sinna almannaþjónustu um land allt. Þið eruð fólkið sem allir landsmenn reiða sig á núna og ég veit að þið munið standa undir þeirri ábyrgð með prýði. Við erum sannarlega stolt af ykkur.
24. mars 2020
Kjarasamningur við Reykjavíkurborg samþykktur
Kjarasamingur Sameykis við Reykjavíkurborg var samþykktur með 80,5% greiddra atkvæða. Kosningaþátttaka var rétt tæplega 35% og já sögðu 80,5%, nei sögðu 15,45% og 4,45% tóku ekki afstöðu.
Tilboð óskast í sumarhús til brottflutnings - Akrakot
Til sölu er orlofshús til brottflutnings. Húsið er Í Reykjaskógi í Biskupstungum og er svokallað A-hús með lágum veggjum á langhlið og bröttu þaki. Húsið stendur á steyptum súlum og er byggt árið 1982. Það er er 58 fm að gólffleti, við það á palli stendur skýli sem er 8,5 fm. Húsið skiptist í stofu, borðstofu og eldhús í sama rými. Þá eru tvö svefnherbergi í húsinu ásamt svefnlofti yfir herbergjum. Hluti af húsi er viðbygging en í henni er bað og forstofa. Húsið skal fjarlægt í síðasta lagi 30. apríl næstkomandi og skal kaupandi gera það á sinn kostnað.
23. mars 2020
Orlofshús ekki leigð út fyrir sóttkví
Í ljósi aðstæðna vegna COVID-19 sýkingar þá skal tekið fram að orlofshús og íbúðir félagsins eru ekki til leigu fyrir sóttkví.
Kjarasamningur við Sambandið samþykktur
Kjarasamningur Sameykis og Sambands íslenskra sveitarfélaga var samþykktur með miklum meirihluta. Atkvæðagreiðslunni lauk nú í morgun og var þátttaka 43%. Niðurstöður fóru á þann veg að já sögðu 77,99%, nei sögðu 20,75%. 1,26% tóku ekki afstöðu.
Aðalfundi Sameykis frestað
Aðalfundi Sameykis sem vera átti þann 31. mars næstkomandi verður frestað um óákveðinn tíma samkvæmt ákvörðun stjórnar Sameykis. Ástæðan er samkomubann og hið erfiða ástand vegna Covid-19 veirunnar sem nú herjar á okkur. Nýr aðalfundur verður haldinn um leið og hægt er og verður þá að sjálfsögðu auglýstur með lögformlegum leiðum.
19. mars 2020
Foreldrar fái greiðslur vegna skerðinga á skólastarfi
Í frétt á vef BSRB kemur fram að BSRB kallar eftir því að foreldrar barna sem þurfa að vera frá vinnu vegna skerðinga á skólastarfi eða vegna þess að barn viðkomandi sé í sóttkví fái rétt til tímabundinna greiðslna frá ríkinu rétt eins og fólk sem þarf að vera í sóttkví, í umsögn sem send hefur verið Alþingi.