11. maí 2014
Verkfall hefst á morgun
Síðustu samningafundir voru föstudaginn 9. maí og sunnudaginn 11. maí, þar sem reynt var til þrautar að ná samningum en án árangurs. Verkfall hefst því mánudaginn 12. maí kl. 08.00 til 16.00 hjá félagsmönnum SLFÍ og SFR - stéttarfélagi í almannaþjónustu, sem starfa hjá stofnununum innan Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu.
Fyrirtæki og stofnanir innan SFV sem reknar eru fyrir opinbert fé og verkfallið nær til eru: Ás Hveragerði, Dalbær, Eir, Grund, Hlévangur, HNLFÍ, Hornbrekka, Hrafnista Reykjavík, Hrafnista Hafnarfirði, Hrafnista í Kópavogi, Hrafnista Reykjanesi, Kumbaravogur, Lundur, Mörk, SÁÁ, Sjálfsbjargarheimilið, Skjól, Skógarbær, Sóltún og Sunnuhlíð.