1. maí 2014

Verkfalli aflýst - samningar í höfn

Frá undiritun samninganna í Karphúsinu.Eftir rúmlega sólarhringssetu hefur verið skrifað undir kjarasamnings í húsnæði ríkissáttasemjara en samkomulag náðist í deilunni rétt í þessu eftir langan og strangan samningafund. Verkfalli sem hófst kl. átta í morgun hefur því verið aflýst og gert er ráð fyrir að regla komist á vinnustaðina fljótlega og að síðar í dag verði allt komið á rétt ról.

Kynning á kjarasamningnum mun fara fram fljótlega og í kjölfarið fer fram atkvæðagreiðsla um hann.