Sameyki Logo
Heim
21. apríl 2023
Kjarasamningur við Orkuveituna Samþykktur
Atkvæðagreiðslu um breytingar og framlengingu á kjarasamningi Sameykis og Orkuveitunnar i lauk í hádeginu í dag.
19. apríl 2023
Skrifað undir kjarasamning við Ás styrktarfélag
Samkomulag um framlengingu og breytingu á kjarasamningi milli Sameykis stéttarfélags í almannaþjónustu og Áss styrktarfélags var undirritað upp úr kl. 14 í dag.
Kjaraviðræður við sveitarfélögin í hnút
Þórarinn Eyfjörð, formaður Sameykis, ræddi á fundi með félagsfólki á Seltjarnarnesi, Akranesi, í Höfða og stjórn Sameykis um stöðuna í kjaraviðræðum við sveitarfélögin.
Gleðilegt sumar!
Sumardagurinn fyrsti er á morgun og félagsfólk Sameykis fagnar sumrinu rétt eins og aðrir landsmenn. Sumardagurinn fyrsti er upphafsdagur Hörpu sem er fyrstur af sex sumarmánuðum í gamla norræna tímatalinu og ber ætið upp á fimmtudag á tímabilinu frá 19. til 25. apríl eða fyrsta fimmtudag eftir 18. apríl.
Opnað fyrir almennar umsóknir orlofshúsa
Á föstudaginn 21. apríl opnar Orlofshúsavefur Sameykis fyrir bókanir orlofshúsa þar sem gildir „fyrir fyrstur kemur fyrstur fær“. Sautján orlofshús í dagleigu um allt land að bætast þá við á Orlofshúsavefinn. Um er að ræða bókarnir dagleiguhúsa og það sem út af stendur eftir fyrstu sumarúthlutun.
Ársfundur Brúar
Ársfundur Brúar lífeyrissjóðs verður haldinn mánudaginn 8. maí kl. 14 í húsakynnum sjóðsins að Sigtúni 42, Reykjavík. Allir sjóðsfélagar sem og fulltrúar launagreiðenda og viðkomandi stéttarfélaga eiga rétt til fundarsetu á ársfundinum.
18. apríl 2023
Ný stjórn Lífeyrisdeildar
Aðalfundur Lífeyrisdeildar Sameykis var haldinn í dag. Ágætis fundarsókn var á fundinn sem haldinn var í félagamiðstöðinni á Grettisgötu 89 og aðalfundarstörf gengu hratt og vel fyrir sig.
Kjarasamningur við RÚV samþykktur
Atkvæðagreiðslu um samkomulag sem Sameyki gerði við Samtök atvinnulífsins um breytingar og framlengingu á kjarasamningi vegna félagsfólks Sameykis sem starfar hjá RÚV lauk fyrir hádegi í dag.
17. apríl 2023
Aðalfundur Lífeyrisdeildar
Aðalfundur Lífeyrisdeildar verður haldinn 18. apríl kl. 14 að Grettisgötu 89, 1 hæð. Dagskrá fundarins er samkvæmt starfsreglum deildarinnar. Allir félagar í Lífeyrisdeild eru boðnir velkomnir á fundinn.
14. apríl 2023
Kjarasamningur við Reykjavíkurborg samþykktur
Atkvæðagreiðsla um kjarasamning milli Sameykis stéttarfélags í almannaþjónustu og Reykjavíkurborgar lauk kl. 11 í dag. Kjarasamningurinn er með gildistíma frá 1. apríl 2023 – 31. mars 2024.