Sameyki Logo
22. desember 2014
Í frétt á vef VIRK er sagt frá því að stjórn VIRK - Starfsendurhæfingarsjóðs hafi sent Eygló Harðardóttur, félags- og húsnæðismálaráðherra, bréf þar sem kemur fram að afgreiðsla fjárlaga 2015 hafi staðfest ásetning ríkisstjórnarinnar að standa ekki við lög og samninga við aðila vinnumarkaðarins um uppbyggingu starfsendurhæfingar og fjármögnun á VIRK og verði til þess að eitt heildarkefi atvinnutengdrar starfsendurhæfingar verði ekki lengur fyrir hendi.
15. desember 2014
Á laugardag var haldið afar fjölmennt og vel heppnað jólaball SFR og St.Rv. í Gullhömrum. Jólaballið sóttu rúmlega 400 manns, börn og fullorðinir. Þangað komu þrír jólasveinar og dönsuðu kringum jólatréð við mikla hrifningu barnanna.
Myndirnar tala sínu máli.
09. desember 2014
Í nýútkomnu fréttabréfi Starfsmenntar kemur fram að nú á næstu vikum er kjörið að huga að námi á nýju ári og skoða hvað verður í boði hjá Fræðslusetrinu Starfsmennt á vorönninni. Skráningarsíður fyrir öll námskeið hafa verið settar upp og ekkert því til fyrirstöðu að skoða úrvalið og skrá sig. Setrið er einnig í samstarfi við nokkra skóla um hagnýtar námsleiðir sem efla fagmennsku og möguleika á spennandi starfsþróun. Þeir sem vilja nýta sér það þurfa að hafa hraðar hendur þar sem umsóknarfrestur rennur yfirleitt út nokkru fyrir jól.
04. desember 2014
Stjórn SFR ákvað á fundi sínum nýverið að í stað þess að senda jólakort þá myndi félagið styrkja góð málefni, en þessi háttur var einnig hafður á í fyrra. Fulltrúar Samhjálpar og Hjálparstarfs kirkjunnar, þeir Bjarni Gíslason og Vörður Leví Traustasson komu af þessu tilefni og tóku við styrkjum frá félaginu, það var Árni Stefán Jónsson formaður SFR sem afhenti styrkina.
03. desember 2014
Jólafundur trúnaðarmanna var haldinn í vikunni og að venju var slegið á örlítið léttari strengi en venjulega. Þar hélt séra Bjarni Karlsson erindi um það hvað væri kynferðislega aðlaðandi, en hann hefur nám í kynlífssiðfræði að baki. Í erindi sínu fjallaði hann meðal annars um ýmsa þá þætti í menningu okkar sem gera karla stressaða og konur uppgefnar og gaf góð ráð til að létta á stressinu.
Vinnumálastofnun mun greiða út desemberuppbót til atvinnuleitenda þann 5. desember í samræmi við reglugerð sem félags- og húsnæðismálaráðherra hefur gefið út. Full desemberuppbót er 53.647 krónur en greiðsla til hvers og eins reiknast í hlutfalli við rétt hans til atvinnuleysisbóta á árinu. Sjá nánar hér.
01. desember 2014
Stór hópur starfsfólks Fiskistofu sem beðið hefur í margar vikur eftir viðtali við Sigurð Inga Jóhannsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra vegna fyrirhugaðs flutning stofnunarinnar til Akureyrar fjölmennti í ráðuneytið nú í morgun. Starfsfólkið hafði fyrirfram fengið upplýsingar um að ráðherra væri alla jafna í húsinu á þessum tíma en í morgun var hann þó ekki á staðnum til að taka á móti áskorun frá hópnum. Það kom í hlut Kristjáns Skarphéðinssonar ráðuneytisstjóra að taka á móti hópnum sem var ekki ánægður með að hafa ekki enn fengið viðtal þrátt fyrir margar ítrekanir.
Jólaball félagsins verður haldið að Gullhömrum, laugardaginn 13. desember kl. 14. Miðasala er á skrifstofu félagsins, Grettisgötu 89, 4. hæð, frá og með deginum í dag, miðaverð er 700 kr.
Átak gegn kynbundnu ofbeldi stendur yfir dagana 25.nóvember - 10.desember og verður ýmislegt um að vera til að vekja athygli á því. Í tenglinum hér að neðan má sjá þá viðburði sem verða á dagskrá bæði í Reykjavík og á Akureyri. Við hvetjum alla til að kynna sér dagskrána, það er margt í boði og allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi.
Dagskrá átaksins
28. nóvember 2014
Jólaföndur félaganna var haldið á Grettisgötunni í gærkvöld og tókst með afbrigðum vel. Leiðbeinendur voru þær Svava og Margrét Rafnsdætur en þær kenndu þátttakendum að búa til stóran og náttúrulegan hurðarkrans sem mun sóma sér vel á á aðventunni. Stemmningin var afar góð og mikil vinnugleði í loftinu undir notalegri jólatónlist.