1. janúar 2015

Páskaúthlutun með nýju sniði. Umsóknarfrestur 2.-17. feb.

paskauthlutun-januarblad-webPáskaúthlutun orlofshúsa hjá SFR er með öðru sniði í ár en áður. Páskavikunni sem áður var úthlutað sem heilli viku verður nú skipt í tvennt ásamt dymbilvikunni og verður því úthlutað oftar til þess að fleiri geti nýtt sér húsin. Með þessu tvöfaldast páskatímabilið og fleiri njóta, enda ekki allir sem geta verið í fríi alla dagana. Hægt verður að sækja um á orlofsvefnum frá og með mánudeginum 2. febrúar  til og með 17. febrúar næstkomandi, en úthlutun verður lokið 19. feb. Hér má lesa nánari útskýringar á hinu nýja fyrirkomulagi páskaúthlutunar.