02. júlí 2021
Sjötíu útskrifast með diplóma í heilbrigðisgagnafræði frá HÍ
Haustið 2019 hófst ný námsbraut, heilbrigðisgagnafræði, innan Læknadeildar við Háskóla Íslands. Samhliða var starfsheitinu læknaritari breytt í heilbrigðisgagnafræðingur. Rúmlega 100 nemendur hófu námið haustið 2019. Þann 19. júní voru svo útskrifaðir 70 heilbrigðisgagnafræðingar.