07. desember 2021
Gagnrýnir stöðuna um jöfnun launa á milli markaða
Formaður Sameykis segir í leiðaragrein í 4. tbl. tímarits Sameykis: „ Um langa hríð hafa laun opinberra starfsmanna verið töluvert lægri heldur en laun á almennum markaði. Að meðaltali eru þau um 16,7 prósent lægri. Í umræðu áranna hafa ýmsir haldið því fram að það væri réttlátur munur því opinberir starfsmenn væru með svo rík réttindi í lífeyrisgreiðslum. Þegar kæmi að greiðslu lífeyris myndi jafnræði nást í ævitekjum vegna hærri lífeyrisgreiðslna til opinberra starfsmanna.“