02. desember 2021
Lífeyrir og hið opinbera
Gylfi Magnússon, prófessor við Háskóla Íslands fjallar um í grein sinni, B eða ekki B: Lífeyrir og hið opinbera, í nýjasta tímariti Sameykis um lífeyriskerfi opinberra starfsmanna. „Lífeyriskerfi opinberra starfsmanna á sér langa sögu og er mun eldra að stofni til en kerfið á almenna vinnumarkaðinum. LSR er rétt ríflega 100 ára, stofnaður í nóvember 1919. Hann hét í fyrstu Lífeyrissjóður embættismanna og eins og nafnið gefur til kynna þjónaði hann þá eingöngu þeim sem töldust embættismenn, þ.e. æðstu stjórnendum ríkisins. Þeir höfðu raunar haft nokkur eftirlaunaréttindi áður, sem þá voru greidd beint úr ríkissjóði. Ekkjur embættismanna höfðu einnig rétt á lífeyri.