Fréttir og greinar

30. október 2014

Ljósmyndasýning: 30 ár frá verkfalli

1. Verkfall BSRB 1984Á vef BSRB kemur fram að fyrir réttum 30 árum síðan lauk allsherjarverkfalli BSRB og af því tilefni var sýning á ljósmyndum sem Helgi Jóhann Hauksson tók í verkfallinu opnuð kl. 14 í dag, fimmtudaginn 30. október, á 1. hæð í húsi BSRB að Grettisgötu 89. Helgi Jóhann ljósmyndari tók um 1500 ljósmyndir á meðan verkfallinu stóð og voru filmurnar glataðar í fjölda ára en komu í leitirnar ekki alls fyrir löngu. Sýningin er opin alla virka daga frá kl. 9-17.

22. október 2014

Viltu öðlast grænni lífsstíl? Námskeið 23. okt. kl. 17-19:30

Go green Ásthildur B JónsdóttirEf svarið er já, skráðu þig þá núna, en á námskeiðinu 23. okt. verður fjallað um leiðir sem geta stuðlað að sjálfbærum lífsstíl. Þátttakendur fá þjálfun í að setja sér vörður og taka upphafs skref í átt að sjálfbærni. Verkefni sjálbærninnar verða  brotin niður og sett upp í verkefnisáætlun sem þátttakendur taka með sér heim.  Á námskeiðinu uppgötva þátttakendur að það er mun einfaldara og skemmtilegra að tileinka sér sjálfbærar venjur en þeir halda.