Sameyki Logo
21. apríl 2017
Breytingar á skipan lífeyrismála opinberra starfsmanna taka gildi í byrjun júní 2017. Til að auðvelda félagsmönnum að skilja út á hvað breytingarnar ganga hafa verið tekin saman svör við algengum spurningum um málið. Þar er til dæmis svarað spurningum á borð við: Hvað þýðir annarsvegar jöfn ávinnsla réttinda og hinsvegar aldurstengd ávinnsla réttinda? Skerðast lífeyrisréttindi núverandi félagsmanna í A-deildum LSR og Brúar? Af hverju verður lífeyrisaldur opinberra starfsmanna hækkaður úr 65 árum í 67 ár? Og hvenær verða laun á opinberum- og almennum markaði jöfnuð?
19. apríl 2017
Atkvæðagreiðsla um samkomulag um framlengingu kjarasamnings SFR og Isavia fer fram með rafrænum hætti. Atkvæðagreiðslan hefst þann 19. apríl kl. 21:00 og lýkur 25. apríl kl. 12:00.
18. apríl 2017
Við minnum á að fresturinn til þess að sækja um orlofshús í sumar rennur út í kvöld 18. apríl á miðnætti.
12. apríl 2017
Kynningarfundir um nýjan kjarasamning SFR og Isavia verða haldnir 18. og 19. apríl kl. 17:00 á Park Inn by Radisson Keflavik Airport, Hafnargötu 57, 230 Keflavík.
11. apríl 2017
Fljótlega geta félagsmenn átt von á því að fá nýtt félagsskírteini í pósti. Skírteinið er með örlitlu öðru sniði en áður og er til frambúðar.
10. apríl 2017
Skrifað var undir nýjan kjarasamning milli SFR og Isavia kl. 21 í kvöld, en samningaviðræður höfðu staðið yfir síðan í janúar.
07. apríl 2017
Orlofshúsið okkar í Skorradal var að losna rétt í þessu. Þeir félagsmenn sem hafa áhuga að á eyða helginni í Skorradalnum kíki inn á orlofsvef félagsins.
06. apríl 2017
Fyrsti stjórnarfundur nýrrar stjórnar SFR var haldinn í vikunni. Þar skipti stjórn meðal annars með sér verkum og var Bryndís Theodórsdóttir mun áfram gegna embætti varaformanns til áframhaldandi og Gunnar Garðarsson verður áfram ritari.
04. apríl 2017
Opnað hefur verið fyrir útleigu á nýjum íbúðum SFR á Grandavegi 42. Íbúðirnar eru tvær, önnur með tveimur svefnherbergjum og hin með þremur. Þær eru alveg glænýjar og afar glæsilegar.