18. nóvember 2015
Kjaraviðræður í fullum gangi
Kjarasamningsviðræður á milli samningsaðila eru enn í fullum gangi, en SFR gerir kjarasamning við alls 8 aðila. Einungis tveir samningar eru í höfn, þ.e. samningur við Ríki og Isavia en viðræður við aðra aðila eru komnar vel af stað. Í gær funduðu samninganefndir SFR og fulltrúar Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu vegna kjaraviðræðna. Á þessari stundu situr samninganefnd SFR á fundi með samninganefnd Reykjavíkurborgar og síðar í dag verður fundað með samninganefnd RARIK. Hægt þokast í þessum viðræðum öllum en fram á veginn þó.