- október 2016
Sagan af íslenska fæðingarorlofinu – staðreyndir og samantekt reynslusagna
Sagan af íslenska fæðingarorlofinu – staðreyndir og samantekt reynslusagna
Núverandi réttur til fæðingarorlofs er samtals níu mánuðir fyrir foreldra sem skiptist þannig að hvort foreldri um sig á sjálfstæðan rétt til þriggja mánaða og sameiginlega eiga þau þrjá mánuði. Þessa sameiginlegu mánuði mega þau skipta á milli sín eins og þeim hentar. Greiðslur í fæðingarorlofi eru svo 80% af meðallaunum foreldra ár aftur í tímann miðað við dagsetningu sem er sex mánuðum fyrir settan fæðingardag.
Hámarksgreiðslur frá Fæðingarorlofssjóði, eða svonefnt þak er 370.000 kr. sem er vel undir meðallaunum hér á landi. Það þýðir að foreldri sem eru með meira en 462.500 kr. meðaltal heildarlauna rekst í þak Fæðingarorlofssjóðs og getur að hámarki fengið 370.000 kr. fyrir skatt og annan frádrátt. Eftir skatt og stéttarfélagsgjöld getur því foreldri að hámarki útborgað 271.068 frá Fæðingarorlofssjóði og enn minna ef það er með viðbótarlífeyrissparnað. Viltu vita meira? Skoðaðu www.facebook.com/betrafaedingarorlof og taktu þátt í átaki ASÍ og BSRB! Segðu þína sögu tengda fæðingarorlofi á samfélagsmiðlunum og merktu með #betrafaedingarorlof. Mundu að hafa færsluna sýnilega öllum (stilla á public).