15. júní 2015
Ályktun BSRB um lög á verkföll
Stjórn BSRB hefur sent frá sér ályktun þar sem lagasetningu stjórnvalda á verkfallsaðgerðir BHM og Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga er mótmælt.
Stjórn BSRB bendir á að í samningaviðræðum síðustu vikna hefur samninganefnd ríkisins talið sig bundna af ákvæðum í nýgerðum samningum á almennum markaði. Sú afstaða ríkisins hefur því skert samningsfrelsi BHM og Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Nú þegar stjórnvöld hafa ákveðið að koma í veg fyrir frekari verkfallsaðgerðir umræddra félaga með lögum hefur samningsstaða BHM og Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga versnað enn frekar.