Sameyki Logo
Heim
10. desember 2024
Kjaratölfræði, BSRB og starfssemi Sameykis rætt á trúnaðarmannaráðsfundi
Fundur í trúnaðarmannaráði Sameykis var haldinn í dag á Grand Hótel. Fjöldi trúnaðarmanna mætti á fundinn ...
05. desember 2024
Skráðu þig í Háskóladeild Sameykis
Ef þú með háskólamenntun en hefur ekki skráð þig í Háskóladeild Sameykis hvetjum við eindregið til þess.
04. desember 2024
Kjarasamningur við Rarik samþykktur
Atkvæðagreiðsla um kjarasamning milli Sameykis stéttarfélags í almannaþjónustu og Samtaka atvinnulífsins vegna Rarik lauk um hádegi í dag. Kjarasamningurinn er til 4 ára með gildistíma frá 1. febrúar 2024 til 1. febrúar 2028.
02. desember 2024
Gleði á jólaballi Sameykis
Jólaball Sameykis var haldið í gær. Fullt var út úr dyrum og jólasveinar skemmtu sér með börnum og fullorðnum og gleðin skein úr hverju andliti. Dansað var í kringum jólatré og sungnir jólasöngvar. Veitingar og glaðningur var í boði Sameykis og félagsfólk fór glatt heim af jólaballinu.
Saman að sjálfbærni
Félagsleg skautun hefur aukist í íslensku samfélagi á undanförnum árum, og á það sérstaklega við um ýmis málefni sem heyra undir sjálfbærni eins og samfélagsleg réttindi, loftslagsmál og efnahagslegar breytingar. Þessi þróun er ekki séríslensk, félagsleg átök og sundrung hafa vaxið víða og skapa þá rými fyrir stjórnmálaleiðtoga sem nýta slíkt ástand sér til framdráttar. Á sama tíma stöndum við frammi fyrir flóknum áskorunum vegna ósjálfbærs lífernis á jörðinni, áskorunum sem krefjast samvinnu allra til lausnar.
28. nóvember 2024
Kjarasamningur við Rarik
Kjarasamningur milli Sameykis stéttarfélags í almannaþjónustu og Samtaka atvinnulífsins vegna Rarik var undirritaður í dag. Kjarasamningurinn er til 4 ára með gildistíma frá 1. febrúar 2024 til 1. febrúar 2028.
Siðlaus einkavæðing gegn almannahagsmunum
Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, og Finnbjörn A. Hermannsson, forseti ASÍ, skrifa grein sem birtist á Vísi í morgun, Siðlaus einkavæðing gegn almannahagsmunum.
27. nóvember 2024
Sameining lífeyrissjóða
Lokaskrefið hefur verið stigið í sameiningu Lífeyrissjóðs starfsmanna Reykjavíkurborgar við Brú lífeyrissjóð. Frá árinu 1998 hefur Lífeyrissjóður starfsmanna Reykjavíkurborgar (LsRb) verið í rekstri Brúar lífeyrissjóðs (áður Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga LSS).
Vinnudagbókin 2025
Hægt er að panta vinnudagbókina í stærðinni A6 fyrir árið 2025 hér á vefnum með því að fylla út umsóknarformið og við sendum hana í pósti. Áætlað er að hún komi út um miðjan desember. Að þessu sinni er hún skreytt með mynd af Berghnoðra.
Rétturinn til mannsæmandi húsnæðis á viðráðanlegu verði
ETUC (Evrópska stéttarfélagasambandið) stendur fyrir ráðstefnu um húsnæðismál 5. december nk. vegna samþykktar á framkvæmdastjórnarfundi Evrópuráðsins 15.–16. október sl. um yfirvofandi húsnæðiskreppu í Evrópu.