10. september 2014
Fjárlagafrumvarpið – stefna stjórnvalda um skipulagsbreytingar og umbætur í ríkisrekstri
Alma Lísa Jóhannsdóttir, ráðgjafi hjá SFR skrifar:
Fjármálaráðherra Bjarni Benediktsson sagði í fréttum Ríkisútvarpsins í morgun að Ísland væri ekki að færast frá Norðurlöndunum þrátt fyrir að hlutur samneyslunnar af vergri þjóðarframleiðslu fari undir þau mörk sem þekkist á hinum Norðurlöndunum. Þá kom einnig fram að fjármálaráðherra telur þjónustustig og gæði þjónustunnar á Íslandi vera eins og best getur.
Engu að síður boðar fjárlagafrumvarpið stórfelldar breytingar. Verkefni stjórnvalda breytast svo sannarlega. Leiðin sem hér er valin til þess að leysa þær áskoranir sem bíða okkar er kerfisbreyting. Fjármálaráðherra vill láta einkamarkaðinn sjá um velferðar- og heilbrigðisþjónustuna.