07. maí 2014
Stefnir í boðað verkfall - Opinn fundur 12. maí kl. 9
SFR stéttarfélag og Sjúkraliðafélag Íslands hafa sameiginlega átt í kjaraviðræðum við SFV en fundað hefur verið stíft síðustu daga. Lítið hefur þokast í samningsátt og flest mál eru enn óútkljáð. Því stefnir að óbreyttu í boðað verkfall næsta mánudag þann 12. maí. Þá munu allir félagsmenn SFR og sjúkraliðar hjá SFV leggja niður störf á tímabilinu frá kl. 8.00 til kl. 16.00. Verkfallsmiðstöð verður að Grettisgötu 89, 1. hæð.
Þær stofnanirsem eru aðilar að Samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu eru: Ás, Dalbær, Eir, Garðvangur, Grund, Hlévangur, HNLFÍ, Hornbrekka, Hrafnista Reykjavík, Hrafnista Hafnarfirði, Hrafnista Kópavogi, Hrafnista Reykjanesi, Kumbaravogur, Lundur, Mörk, SÁÁ, Sjálfsbjargarheimilið, Skjól, Skógarbær, Sóltún , Krabbameinsfélagið og Sunnuhlíð/Vigdísarholt.