1. mars 2015

Hádegisfundur í tilefni af baráttudegi kvenna

Althjodlegur_barattudagur_kvenna_fundarbod_2015Í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna 8. mars verður hádegisfundur á Grand Hótel Reykjavík mánudaginn 9. mars 2015 kl. 11.45-13.00 í Hvammi.

Á fundinum verður fjallað um samræmingu fjölskyldu- og atvinnulífs undir yfirskriftinni Er tími til að njóta lífsins? 

Við upphaf fundar verður borin fram tómat- og slasasúpa með grænmeti, kjúklinig, sýrðum rjóma, osti og nachos ásamt kaffi. Verð 2.600 kr.

Sjá auglýsingu hér.

Þrjú erindi verða flutt:

 

Vinna Íslendingar of mikið?
Ragnheiður Eyjólfsdóttir, verkefnisstjóri hjá Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum.

Rjúkandi rúst? Fæðingarorlof í hruni og endurreisn.
Ingólfur V. Gíslason, lektor í félagsfræði við Háskóla Íslands.

Samspil heimilis og vinnu meðal íslenskra hjóna.
Þóra Kristín Þórsdóttir, doktorsnemi í félagsfræði.

Fundarstjóri verður Haraldur Freyr Gíslason, formaður Félags leikskólakennara.