- febrúar 2015
Námskeið fyrir félagsmenn á Norðurlandi vestra
Námskeið fyrir félagsmenn á Norðurlandi vestra
SFR býður félagsmönnum sínum á Norðurlandi vestra á námskeið, þeim að kostnaðarlausu, í samstarfi við Farskólann. Um er að ræða námskeiðin Matjurtagarðurinn þinn, Siðfræði og samskipti og Spjaldtölva (iPad) fyrir byrjendur og verða þau haldin á Blönduósi, Sauðárkróki og Hvammstanga ef lágmarksskráning næst.Skráning hér.
Matjurtagarðurinn þinn
Að loknu þessu námskeiði hefur þú lært um sáningu, ræktun, umönnun í ræktun matjurta, jarðveg og áburðargjöf. Sýndar eru mismunandi gerðir ræktunarbeða, karma og skjólgjafa. Saga matjurtaræktar á Íslandi reifuð, skýrt frá uppruna tegundanna sem teknar eru til umfjöllunar, eðliseinkennum um 40 tegunda og yrkja ásamt því að fjalla lítillega um hollustu og lækningamátt matjurta. Farið er yfir sjúkdóma og lýst nokkrum aðferðum við geymslu og matreiðslu.
Leiðbeinandi Jón Guðmundsson, garðyrkjufræðingur
Lengd: 3 klst.
Hvenær:
Siðfræði og samskipti
Hvernig er hægt að nota siðfræðikenningar til að takast á við verkefni daglegs lífs? Hvaða verkfærum býr siðfræðin yfir til þess að takast á við vandamál? Hvernig er hægt að nota hana markvisst til að meta gildi og verðmæti. Arnrún fjallar einnig um siðfræði og samskipti. Framkoma skiptir öllu í mannlegum samskiptum.Hvernig getur siðfræðin hjálpað til? Fyrirlestur, umræður og verkefnavinna.
Leiðbeinandi Arnrún Halla Arnórsdóttir, hjúkrunarfræðingur og doktorsnemi í hagnýtri siðfræði.
Lengd: 4 klst.
Hvenær:
Spjaldtölva (iPad) fyrir byrjendur
Hagnýtt námskeið fyrir byrjendur. Farið yfir grundvallaratriðin í iPad eða spjaldtölvum og helstu forrit sem fylgja tækinu. Kennt á „App store“ og hvernig á að finna og ná í hentug forrit. Farið í helstu stillingar.
Leiðbeinandi Ingvi Hrannar Ómarsson, kennari og sérfræðingur.
Lengd 3 klst.
Hvenær: