1. apríl 2014

Atkvæðagreiðsla um verkfallsaðgerðir

Í gær sumardaginn fyrsta lauk atkvæðagreiðslu um verkfallsboðun starfsmanna fyrirtækja í Samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu. Kosningaþátttaka var 61,9% og samþykkti mikill meirihluti félagsmanna verkfallsboðunina, eða 65%. Samþykkið tekur til félagsmanna er starfa hjá eftirtöldum stofnunum SFV vegna: Áss, Eirar, Grundar, HNLFÍ, Hrafnistu Hafnarfirði, Hrafnistu Kópavogi, Hrafnistu Reykjavík, Krabbameinsfélagsins, Markar, SÁÁ, Sjálfsbjargarheimilisins, Skjóls, Skógarbæjar, Sunnuhlíðar og öðrum stofnunum innan SFV þar sem félagsmenn SFR starfa.

 

Framkvæmd verkfallsins verður sem hér segir;

Á tímabilinu frá kl. 08:00 til kl. 16:00,  mánudaginn 12. maí 2014, munu allir félagsmenn SFR hjá SFV  leggja niður störf.

Á tímabilinu frá kl. 08:00 til kl. 16:00,  fimmtudagur 15. maí 2014, munu allir félagsmenn SFR hjá SFV  leggja niður störf.

Á tímabilinu frá kl. 00:00 til kl. 24:00,  mánudaginn 19. maí 2014, munu allir félagsmenn SFR hjá SVF  leggja niður störf.

 Kl. 08:00, fimmtudaginn 22. maí 2014 hefst allsherjarverkfall allra félagsmanna SFR hjá SFV sem mun standa þar til annað verður ákveðið.