- september 2015
Baráttufundur í Háskólabíó 15. sep. kl. 17
Baráttufundur í Háskólabíó 15. sep. kl. 17
Næstkomandi þriðjudag kl. 17 standa SFR, SLFÍ og LL fyrir baráttufundi fyrir bættum kjörum. Þá fjölmennum við, félagsmenn SFR, í Háskólabíó. Nú verður blásið í lúðra!
Stjórnvöld hafa hafnað því að félagsmenn SFR, SLFÍ og LL fái sambærilegar kjarabætur og sérfræðingar og hálaunafólk, sem starfar hjá ríkinu. Þeir sem eru á lægri launum eiga að sætta sig við einungis hluta í stað sambærilegra kjarabóta.
VIÐ SEGJUM NEI!
Við treystum við því að þið mætið á fundinn. Það er algjört lykilatriði til þess að stjórnvöld skynji alvöruna í kröfum okkar og baráttuvilja félaganna. Við ætlum ekki að sætta okkur við lakari kjör en aðrir ríkisstarfsmenn!
Sýnileiki okkar og samstaða er vopnið okkar í kjarabaráttu – sýnum styrk – mætum!
Vinsamlegast skráið ykkur hér á Facebook á þennan viðburð, fundinn í Háskólabíói. Það gerir okkur sýnileg!
Dagskrá baráttufundar má nálgast hér.
Við erum búin að setja í loftið viðburð (Event) á Facebook. Sú kynning getur verið mjög öflug ef við bjóðum Facebook-vinum okkar að skrá sig á fundinn og taka þátt. Ég bið því alla sem nota Facebook að bjóða vinum sínum á viðburðinn. Fyrir þá sem ekki hafa gert það áður er ferlið þetta:
Afar mikilvægt er að við leggjumst nú öll á árarnar og tryggjum góða skráningu og mætingu!
Miðlun upplýsinga um kjarabaráttu SFR, SLFÍ og LL við ríkið
Vegna þeirrar stöðu sem við erum nú í, þar sem viðræður við samninganefnd ríkisins eru strandaðar, höfum við búið til sérstaka síðu á Facebook sem verður notuð til þess að miðla upplýsingum frá félögunum þremur. Síðan heitir: Barátta2015. Ég vil biðja ykkur um að setja LIKE við hana og fylgjast með því sem er að gerast. Við munum setja fréttir, viðtöl og allt sem viðkemur kjarabaráttunni á þessa síðu. Heimasíður félaganna, sem og Facebook síður félaganna, verða auðvitað líka notaðar í sama tilgangi en fréttaflutningur á Baratta2015 verður ítarlegri þar sem hún mun flytja fréttir af baráttu félaganna þriggja.
Við höfum einnig stofnað twitter síðu fyrir þá sem fylgjast með þar. Hún heitir baratta2015. Hún mun flytja sömu upplýsingar og vísa í fréttaflutning af því sem er að gerast. Öll tíst verða einkennd með #baratta2015 en þetta á einnig við um pósta sem við setjum inn á Facebook.
Fyrir þau ykkar sem ekki þekkið tilganginn með þessu er þetta gert þar sem að þá safnast allt sem sagt hefur og er merkt #baratta2015 á einn stað, bæði á Twitter og Facebook sem gerir leit að fréttum auðvelda.